Páskamessur og páskahlátur í Neskirkju
Minni á páskana, stærstu hátíð kristninnar. Messur í Neskirkju verða sem hér segir.
Minni á páskana, stærstu hátíð kristninnar. Messur í Neskirkju verða sem hér segir.
Pálmasunnudagshelgin var annrík og ánægjuleg í Neskirkju því þar voru þrjár fermingarmessur og ein hátíðarmessa Áfram…
Prédikun Úrsulu Árnadóttur, cand. theol. í Neskirkju 25. mars 2007 á boðunardegi Maríu má lesa á þessari slóð. Úrsula er skrifstofustjóri Neskirkju og flutti sína fínu prédikun í fjölmennri messu dagsins.
Dr. Svanur Kristjánsson, prófessor flutti erindi á Opnu húsi í Neskirkju s.l. miðvikudag, 7. mars 2007 og fjallaði um þróun lýðræðis á Íslandi, um lýðveldisstofnunina og hvaðan Íslendingar hefðu fengið sínar hugmyndir um lýðræði. Og niðurstöður hans er einkar athyglisverðar fyrir kirkjufólk því hann heldur því fram að hugmyndir Íslendinga á fyrri hluta liðinnar aldar um lýðræði eigi sér rætur í kristinni kirkju og guðfræði.
Legg til að Svanur verði fenginn sem ræðumaður á næstu Prestastefnu sem haldin verður í lok apríl á Húsavík.
Á vefslóðinni hér að neðan er hægt að nálgast lexíu, pistil og guðspjall næsta sunnudags, 11. mars 2007, sem ég er að glíma við. Ég sagði matargestum á Saltfiskdögum í Neskirkju frá þessari erfiðu glímu minni og að þeir gætu ásamt öðrum fengið að heyra afraksturinn í messunni n.k. sunnudag 11. mars kl. 11. Smelltu hér til að sjá textana. Viltu gefa mér ráð? Leggja orð í belg? Skrifaðu þá athugasemdir þínar hér á vefinn.
Þá er stefnt að því að birta ræðuna á vefnum sem hljóðskrá í kjölfar messunnar ef vel tekst til með upptöku og tölvuvinnslu en ég birti flestar prédikanir mínar á vefnum sem textaskjöl.
Hefurðu heyrt um Saltfiskdaga í Neskirkju á föstunni?
Slóðin er hér.
Ég má til með að segja ykkur frá Saltfiskdögum á föstu í Neskirkju en þeir eru haldnir í kjölfar kjötkveðjuhátíðar sem hér á landi er einkum haldin í formi sprengidags. Áfram…
·