örnbárður.annáll.is

AnnállAuglýsingarLíkræðurPistlar o.fl.PrédikanirUm annálinnÞýðingar

« Birgir Finnsson 1917-2010 · Heim · Skúli Helgason 1925-2010 »

Lífsdansinn og taktur alheimsins

Örn Bárður @ 16.49 11/7/10

thjoddansar

Prédikun í Neskirkju sunnudaginn 11. júlí 2010 kl. 11 sem var 6. sunnudagur eftir þrenningarhátíð (trinitatis). Textar dagsins eru birtir neðanmáls. Ræðuna er hægt að lesa og hlusta á með því að smella á þríhyrninginn sem birtist á eftir.

Í messunni leiddu félagar úr Kór Neskirkju söng. Organisti var Sigrún Steingrímsdóttir. Fulltrúar á norrænu móti þjóðdansafélaga fylltu kirkjuna og mættu í litríkum þjóðbúningum, lásu ritningarlestra og sungu.

Hægt er að lesa ræðuna hér á eftir og einnig hlusta á hljóðupptöku með því að smella á þríhyrninginn sem birtist á eftir.

Prédikunin

Í kvöld lýkur HM í knattspyrnu í S-Afríku. Miklu ferli mun þar með ljúka. Tómarúm fylgir slíku fyrir mörg þeirra sem fylgst hafa með keppninni.

Lífið samanstendur af atburðum, óteljandi atburðum og samskiptum þar sem fólk heilsast og kveður, fagnar og saknar, hlær og grætur. Margir hafa farið sneyptir heim meðan aðrir hafa staðið sigri hrósandi, hylltir af stórum hópum áhangenda. Knattspyrnumennirnir knáu hafa glatt okkur mörg á liðnum dögum. Hamingjustundir lífsins eru margar sem betur fer.

Sjálfur upplifði ég hamingjustundir í liðinni viku þar sem ég heilsaði og fagnaði fólki en líka stundir þegar ég kvaddi með söknuði. Svona er lífið. Við heilsum og kveðjum.

En hvaða atburðir og þá einkum kveðjustundir hafa haft á þig afgerandi áhrif?

Við prestar erum oft með fólki sem kveður látinn ástvin. Slíkar stundir hafa mikil áhrif og marka djúp spor í ævi fólks. Öll þurfum við að kveðja aðra og við verðum öll að kveðja í fyllingu tímans.

Hvers vegna er erfitt að kveðja? Það er vegna þess að þau sem við elskum eiga rúm í hjarta okkar. Við höfum tekið þau inn í innstu veru okkar. Þar eiga þau heima. Þar eru þau.

Börnin mín sem búa í útlöndum og ég sé sjaldan eru mér eins nærri í hjarta og þau sem búa hér heima á Íslandi og ég hitti mun oftar. Öll eigum við ástvini hjarta nærri og svo eigum við öll rúm í hjarta þeirra sem elska okkur.

Lífið byggir á samskiptum okkar við annað fólk og öll þau samskipti eru tengd hjarta Guðs. Allt sem gerist, illt eða gott, hefur áhrif á hjarta Guðs, verkar á innsta eðli allrar tilverunnar því allt er tengt og ekkert er utan við Guð. Hann gleðst með okkur og hann grætur með okkur, hann er með okkur á stærstu hamingjustundum lífsins og hann er eins nálægt og hægt er að vera þegar hjarta okkar er við það að bresta af harmi og sorg. Lestu 139. sálm Davíðs og lestu líka 23. sálminn. Þar er þetta allt staðfest og sett fram á skáldlegan og myndrænan hátt.

Í guðspjalli dagsins er Jesús að kveðja sína nánust vini. Hann kallar þá til sín þar sem hann er á fjalli. Þetta er dramatísk stund.

En þeir töldu sig hafa kvatt hann áður. Á föstudaginn langa sáu þeir hann hanga á krossi. Þá nísti sorgin hjarta þeirra.

En hann kom aftur. Hann reis upp frá dauðum og var með þeim í 40 daga.

Og nú var hann að kveðja og sumir voru í vafa um allt sem hann sagði og gerði.
Nú var hann á förum fyrir fullt og allt.

Eða hvað?

Nei, hann skildi eftir loforð, fyrirheit um ævarandi nærveru. Og hann stendur enn við þau orð.

Hann er hér. Hann er í öllu. Hann er allsstaðar. Yfir og allt um kring með eilífri blessun sinni.

Í glænýrri bók Njarðar Péturssonar Njarðvík endursegir hann nokkrar af sögum Nýja testamentisins á mjög svo fagran og trúverðugan hátt. Hann segir þar til að mynda frá Pétri í hallargarðinum þegar hann ornaði sér við eldinn um það bil er hann afneitaði Jesú.

Lesa á s. 72 frá orðunum: „Ambáttin þrástarir á mig . . .“ og til orðann á s. 73: „yfirgefið mig. Okkur öll.“

Jesús er á förum en hann lofar að vera ætíð til staðar í anda sínum.

Og hugsið ykkur þetta ótrúlega verkefni sem hann fól þessum 11 mönnum sem næstir honum stóðu:
Farið út um allan heiminn.

Óvinnandi vegur fyrir allslausa menn með ekkert í höndum nema trú, von og kærleika.
En trú, von og kærleikur er alls ekki eitthvert nema, alls ekki ekki neitt, heldur allt sem þarf til að lifa innihaldsríku lífi og sigra.

Afneitarinn Pétur og hinir efagjörnu sem hann kvaddi á fjallinu héldu af stað í trú og þess vegna erum við hér. Á okkur sannast að orð Jesú voru og eru sönn, fyrirheit hans trygg, trúfestin algjör, elskan skilyrðislaus.

Hann er hér. Hann er í okkur fyrir anda sinn. Hann gaf okkur eilíft líf í skírninni þegar við vorum helguð honum með heilögum krossi á enni og brjóst. Hann er í okkur og við í honum. Þá eignuðumst við eilíft líf og vist í himni Guð. Eilífðin er löngu byrjuð því við erum samgróin Kristi í lífi og dauða og um eilífð alla svo vísað sé til orða postulans í pistli dagsins.

Samgróin, samtengd og í takti við hann og hjartslátt himinsins.

Hér heiðra okkur í dag góðir gestir sem sækja norrænt mót þjóðdansafélaga. Ég sá þau í sjónvarpinu í gær og auðvitað voru þau dansandi og fín og flott í búningum sínum. Dans og tónlist lyftir líkama og sál í æðra veldi. Að dansa er að vera í takti, sameinast, tengjast hönd í hönd, armi í arm, taka sömu spor í takt við tónlist. Að dansa er að vera í takt. Lífið er dans og við erum öll á dansgólfi þessa dýrlega lífs. Og allt þetta er í Guði sem fyllir allt og er allt í öllu. Guð gleðst með okkur, dansar með okkur og hlær, Guð gleðinnar og elskunnar, tónlistarinnar og hins taktfasta lífs sem myndar eina stóra hrynjandi alls heimsins.

Farið og skírið og kennið fólki að halda það sem ég boðaði, segir Jesús. Þetta boð Jesú hefur mótað þjóð okkar og þjóðir Norðurlandanna meir en nokkuð annað í meir en þúsund ár. Orð Jesú: „Sjá ég er með yður alla daga allt til enda veraldar“, hafa fleytt þessum þjóðum yfir erfiðleika í aldanna rás. Það var ekki bjart framundan í lífi Íslendinga í byrjun 19. aldar eftir Móðuharðindin. Og mögum okkar finnst leiðin fram á við torsótt nú og erfiðleikar þjóðarinnar næstum óyfirstíganlegir.

Ellefu menn á fjalli, efagjarnir, fátækir, án atvinnu, lífeyrissjóðs eða almannatrygginga, heyrðu orðin: Farið, skírið, kennið. Þeir fóru og þeir reyndu að lokaorðin hans voru sönn: „Sjá ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“

Hvað er að óttast! Ekkert! Því hann er með okkur. Hann er hér. Hann er í þér og mér. Hann sem skapaði allt og elska allt. Hjarta hans slær takt alheimsins, eilífðarinnar sjálfrar.

Og við
- við erum í takti við hann.

Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögu anda. Svo sem var frá upphafi er og verður um aldir alda. Amen.

Textaröð:  A
Lexía:  Jes 43.1-7

En nú segir Drottinn svo,
sá sem skóp þig, Jakob,
og myndaði þig, Ísrael:
Óttast þú ekki því að ég frelsa þig,
ég kalla á þig með nafni,
þú ert minn.
Gangir þú gegnum vötnin
er ég með þér,
gegnum vatnsföllin,
þá flæða þau ekki yfir þig.
Gangir þú gegnum eld
skalt þú ekki brenna þig
og loginn mun ekki granda þér.
Því að ég, Drottinn, er Guð þinn,
ég, Hinn heilagi Ísraels, frelsari þinn.
Ég læt Egyptaland í lausnargjald fyrir þig,
Kús og Seba í þinn stað,
þar sem þú ert dýrmætur í augum mínum,
mikils metinn og ég elska þig.
Ég legg menn í sölurnar fyrir þig
og þjóðir fyrir líf þitt.
Óttast þú ekki
því að ég er með þér.
Ég mun flytja niðja þína úr austri
og safna þér saman úr vestri.
Ég segi við norðrið: „Slepptu þeim,“
og við suðrið: „Lát þá lausa.
Komdu með syni mína heim úr fjarlægð
og dætur mínar frá endimörkum jarðar,
sérhvern þann sem við nafn mitt er kenndur,
því að ég hef skapað hann mér til dýrðar,
myndað hann og mótað.“

Pistill:  Róm 6.3-11

Eða vitið þið ekki að við öll, sem skírð erum til Krists Jesú, erum skírð til dauða hans? Við erum því dáin og greftruð með honum í skírninni. Og eins og faðirinn vakti Krist frá dauðum með dýrðarmætti sínum, eins eigum við að lifa nýju lífi.
Fyrst við erum samgróin honum með því að deyja líkt og hann eigum við einnig að vera samgróin honum með því að rísa upp líkt og hann. Við vitum að okkar gamli maður dó með honum á krossi til þess að líkami syndarinnar yrði að engu og við værum aldrei framar þrælar syndarinnar. Dauður maður er leystur frá syndinni.
Ef við erum dáin með Kristi trúum við því að við munum og með honum lifa. Við vitum að Kristur, upp vakinn frá dauðum, deyr ekki framar. Dauðinn drottnar ekki lengur yfir honum. Með dauða sínum dó hann frá syndinni í eitt skipti fyrir öll en lífi sínu lifir hann Guði. Þannig skuluð og þið álíta sjálf ykkur vera dáin frá syndinni en lifandi Guði í Kristi Jesú.

Guðspjall:  Matt 28.18-20

Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður og sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“

url: http://ornbardur.annall.is/2010-07-11/lifsdansinn-og-taktur-alheimsins/


© örnbárður.annáll.is · Færslur · Ummæli