örnbárður.annáll.is

AnnállAuglýsingarLíkræðurPistlar o.fl.PrédikanirUm annálinnÞýðingar

« Jón Kristinn Hansen 1934-2009 · Heim · Emmy Margit Þórarinsdóttir 1941-2009 »

Taugahagfræði, trú og traust

Örn Bárður @ 16.53 1/1/10

CSC_0247Prédikun flutt í Neskirkju á nýársdag 2010 kl. 14.

Úr ræðunni:
Getur verið að í tilverunni, innst í eðli hennar, sé einhver jöfnunar-búnaður sem sér til þess að ofgnóttin jafnist út, að ofurhagur fárra sléttist út til þess að koma í veg fyrir algjört yfirlæti og hroka hinna hagsælu?

Texta ræðunnar er hægt að lesa hér og einnig er unnt að hlusta á ræðuna með því að smella á þríhyrninginn sem birtist fyrir neðan.

Myndina tók höfundur á Ægisíðunni í blíðunni á gamlársdag. Bessastaðir og Keilir á bak við blaktandi strá.

Taugahagfræði, trú og traust

I.
Ég var að fletta gamalli bók með ævintýrum fyrir börn, bók sem ég átti þegar ég var drengur. Dótturdóttir mín settist hjá mér og hlustaði á söguna um Stígvélaða köttinn. Þar var líka að finna söguna um Gullfuglinn og fleiri góðar sögur. Barnasögur og ævintýri eru mikilvægar fyrir mannlífið. Þær geyma sannindi, andlega og menningarlega fjársjóði. Sögur Biblíunnar hafa sama hlutverki að gegna. Sagan um Adam og Evu í Paradís er til að mynda táknsaga, lykilsaga, til skilnings á mannlegu eðli og ástandi heimsins. Hún er saga sem aldrei gerðist sem slík en er samt alltaf að gerast því hún er sagan um mig og þig. Nýlega heyrði ég brot úr ræður í útvarpi sem Kristján heitinn Eldjárn, forseti, flutti að mig minnir við setningu Alþingis. Hann ræddi þar um réttlátt þjóðfélag og sagði eitthvað á þá leið að það hlyti að vera keppikefli allra en hins vegar yrði þjóðfélagið aldrei fullkomið vegna hins gamla Adams sem í okkur býr. Ég hjó eftir því að forsetinn fyrrverandi var með þetta mikilvæga atriði guðfræðinnar á hreinu. Hinn gamli Adam er í okkur öllum.

II.
Aldrei á minni lífsfæddri ævi hef ég hlustað á eins marga hagfræðinga og á liðnu ár. [Og þið hlæið. Blessaðir hagfræðingarnir okkar] Nýlega heyrði ég viðtal við fræðimanninn, Paul Zak, sem stundar vísindi þar sem fjallað er um traust, hagfræði og dyggðir. Hann kallar fræði sín taugahagfræði - neuro economics. Já, þú heyrðir rétt, ég sagði: taugahagfræði. Fljótt á litið mætti halda að hún fjallaði um taugar eða tengsl á milli manna – einskonar hagsmunatengsl eða þannig – en svo er ekki. Zak rannsakar taugaboð sem tengjast tiltekinni stöð í heilanum sem stjórnar trausti, samhygð og skilningi á heildarhagsmunum, samhenginu í lífi fólks. Trúarbrögðin skipta mannlífið höfuðmáli þegar kemur að dyggðum og gildum mannlífsins.

Hvað olli Hruninu á Íslandi? Í erindi sem Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ, flutti hér í Neskirkju í nóvember sagði hún m.a. um Hrunið:

„Ég er sannfærð um að ein meginástæðan fyrir því hvernig fór sé almennt og landlægt virðingarleysi fyrir lögum og reglum.“

Ef eitthvert vit er í kenningunum um taugahagfræði er þá Hrunið ef til vill afleiðing einskonar heilabilunar?

Nei, lífið er nú væntanlega ekki svo einfalt að svara meig slíkri spurningu með neii eða jái. Hins vegar er það skynsamleg kenning að traust manna á meðal sé forsenda heilbrigðs lífs og viðskipta. Ekkert þjóðfélag stenst án þess að traust ríki á meðal fólks í daglegum samskiptum og enn fremur í viðskiptum. Og er það ekki merkilegt sem Zak segir að um eða yfir 90% fólks breytir rétt í flestum tilvikum í samskiptum við náungann? Það gefur okkur nú von í trúnni á manninn. Traust byggir á trú, byggir á grunngildum sem trúarbrögðin boða að sé undirstaða heilbrigðs samfélags.

III.
Nú eru áramót og við stöndum á tímamótum. Búið er að samþykkja Icesave-málið á Alþingi og nú verðum við að horfa fram á veginn hver sem afstaða okkar kann annars að vera til þess hræðilega máls. Við verðum að vinna úr Hruninu á ærlegan og heiðarlegan hátt og með réttlæti og sannleika að leiðarljósi.

Við bíðum öll niðurstöðu Rannsóknarnefndar Alþingis. Gefið hefur verið í skyn að sú mynd sem dregin verður upp í skýrslunni verði dökk og dapurleg. Þar verða skilgreind mistök, vanræksla og sekt.

Aftur vitna ég í Salvöru sem talaði um uppgjör vegna Hrunsins:

„Vitaskuld er mikilvægt að finna sökudólga. Það hljóta einhverjir að bera ábyrgð á því að svo hörmulega fór fyrir heilli þjóð. En hvort sem einhverjir verða dregnir til ábyrgðar, eða hverjir það verða, megum við ekki gleyma því að ef raunverulegt endurmat á að eiga sér stað, verðum við einnig að horfast í augu við að ábyrgðin er ekki aðeins örfárra. Skýringarnar eru bæði flóknar og fjölmargar og flóknari en nokkur dómsmál munu megna að takast á við. Þær skýringar liggja að einhverju leyti í gildismati okkar, samfélagsgerð og starfsháttum. Og það er ekki nema við höfum kjark til að líta á atburðina í stærra samhengi að við eigum möguleika á því að breyta raunverulega einhverju í okkar samfélagi. Þá má ekki gleymast að slíkt endurmat getur ekki átt sér stað á mótmælafundum á Austurvelli, með fullri virðingu fyrir þeim, eða undir grjótkasti. Það getur einungis gerst með heilbrigðum skoðanaskiptum, einlægum vilja til að draga lærdóma af mistökum fortíðar og staðfestu og aga til að breyta í raun starfsháttum og fylgja lærdómunum eftir.“

IV.
Í dag er svonefndur áttidagur jóla, dagur ný upphafs. Liðnir eru átta dagar frá fæðingarhátíð frelsarans og skv. gyðinglegri hefð var sveinbarn umskorið á áttunda degi og gefið nafn. Og barnið frá Betlehem hlaut nafnið Jesús sem engillinn hafði boðað að hann skyldi hljóta áður en hann var getinn í móðurlífi. Nafnið Jesús merkir Guð frelsar, Guð bjargar. Við hefjum árið í nafni hans.

V.
Stundum er eins og all sé á uppleið allt gangi upp og heppnist, velsældin blómstri, hagsæld og hamingja haldist í hendur. En svo kemur niðursveiflan eða jafnvel algjört hrun. Getur verið að í tilverunni, innst í eðli hennar, sé einhver jöfnunar-búnaður sem sér til þess að ofgnóttin jafnist út, að ofurhagur fárra sléttist út til þess að koma í veg fyrir algjört yfirlæti og hroka hinna hagsælu?

Þegar Jesús hóf starf sitt og kom til Nasaret gekk hann að venju sinni í samkunduhúsið og las úr Jesaja spámanni. Þar er talað um „náðarár Drottins.“ (Lúk 4.19) Náðarár var fimmtugasta árið, þegar liðin voru sjö sinnum sjö ár eða fjörutíu og níu ár. Þá tók við fimmtugasta árið þegar allar fjárskuldbindingar voru gefnar upp, allt jafnað út og núllstillt, og allir stórsamningar voru látnir ganga til baka (5. Mós 15. kafli og 3. Mós 25. kafli). Menn gátu skv. þessum lögum ekki átt land lengur en í fimmtíu ár. Þá varð að skila því. Þannig var komið í veg fyrir óeðlilega auðsöfnun fárra einstaklinga og um leið ánauð fjöldans.

Eigum við ekki að kalla inn kvótann, kalla inn auðæfin sem gefin voru endurgjaldslaust? Ég held það. Við eigum að gera það með einum eða öðrum hætti og jafna út.

Var Hrunið einskonar náðarár? Átti það sér stað til þess að jafna allt út, taka af þeim ríku og jafna því út til hinna fátæku? Nei, því miður virðist sú ekki hafa verið raunin því það var, er og verður almenningur sem ber skaðann. Hrunið er mannanna verk, mannleg kerfi brugðust, hinn gamli Adam var þar að verki og hann er í okkur. En hinn nýi Adam, Kristur, sem aldrei brást og aldrei mun bregðast, mætir okkur hér í dag og vill fá að leiðbeina okkur á nýju ári. Við hefjum nýtt ár í nafni hans.

VI.
Lífið heldur áfram. Ef nýja árið verður ekki náðarár í anda þeirrar jöfnuna sem Jesús talaði um þá verður það náðarár í skilningi nærveru hins kærleiksríka skapara, hans sem gerðist maður í Jesú Kristi. Sú saga er ekki ævintýr, eins og um Stígvélaða köttinn eða Gullfuglinn, heldur raunveruleg saga. Í ljósi þess að Guð gerðist maður og varð einn af okkur skulum við ganga vondjörf til móts við framtíðina í öruggu trausti til þess að hann sem lítur þúsund árin sem daginn í gær og telur hverja atómsekúndu, hann er við völd, hann er með okkur. Lífið er í hendi hans.

Guð gefi okkur öllum gleðilegt nýtt ár.

Í Jesú nafni!

Amen.

url: http://ornbardur.annall.is/2010-01-01/taugahagfraedi-tru-og-traust/

Athugasemdir

Fjöldi 2, nýjasta neðst

Kristján Baldursson @ 14/1/2010 10.30

Kæri bróðir Örn Bárður.
Þakka þér fyrir þessa góðu ræðu. Ég las hana hérna á netinu, þar sem ég hafði ekki möguleika á að mæta til þín í kirkjuna. Fyrir trúaða hlýtur trú á alheimsréttlælti að vera staðreind. Þó manni finnist stundum erfitt að koma auga á það. en það er held ég vegna þess stutta tíma sem við höfum til að meta það. Alheimsréttlæti þegar öllu er á botnin hvolft er og enginn efi á því í mínum huga. Mennirnir eru svo misjafnlega á vegi staddir í þroskaferlinum og ég trúi því að maður lifi mörg líf til að ná fullkomnun. Ekki ómerkari maður en Yogananda segir í ævisögu sinni og fullyrðir að mjög víða í biblíunni megi ráða viðurkenningu á hringrás endurfæðinganna. Og hann segir að Jóhannes skírari hafi í síðustu holdtekju verið Elía Spámaður og Jesús hafi verið Elisa. Ég hef oft lesið um kraftaverk Elisa í Konungabókinni og trúi á þessa kenningu.
En þetta var nú útúrdúr. Og veit ég ekki hvort þú ert mér sammála um þetta atriði.
Ég á heima núna í Osló en er núna hjá elstu dóttur minni og tengdasyni ásamt 2 barnabörnum í Katalóníu.Ég óska þér gleðilegs árs og þakka góða viðkynningu og vináttu
Kær kveðja
Kristján Baldursson

Örn Bárður @ 19/1/2010 21.55

Blessaður, Kristján og þakka þér fyrir viðbrögðin við ræðunni.

Ég held fast í þá trú að í veröldinni búi innra réttlæti enda þótt það komi ekki endilega fram strax eða eins fljótt og við viljum helst!

Varðandi orð þín um endurfæðingu og endurholdgun vil ég segja þetta: Endurfæðing að kristnum hætti merkir ekki að verða til aftur á jörðinni heldur er átt við það að menn taki sinnaskiptum og breyti hugsun sinni eins og Jesús ræddi um við Nikódemus í 3. kafla Jóhannesarguðspjalls. Þegar talað er um að Jóhannes skírari sé Elía endurborinn þá er ekki heldur verið að tala um að sá síðarnefndi hafi fæðst aftur í Jóhannesi heldur að Jóhannes hafi tekið við hlutverki hans.

Endurholdgun er hugtak sem kemur úr austrænum trúarbrögðum og hefur allt aðra merkingu. Kristnin boðar ekki endurholdgun, ekki að menn fæðist aftur á jörðu. Ég trúi því að ég eigi bara eitt líf, hafi fengið eitt tækifæri til að lifa hér á jörðu. En hins vegar er það líf eilíft í þeim skilningi að það verður til um alla framtíð, alla eilífð. Líf mitt er ekki eilíft aftur á bak í tíma þ.e.a.s. að ég hafi verið til frá upphafi tímans eða jafnvel lengur. Um þetta fjallaði ég m.a. í prédikun sem ég flutti í Neskirkju 29. nóvember 2009 og þú getur nálgast með því að smella hér.

Haltu áfram að pæla og biddu Guð um að gefa þér skilning.

Með bestu kveðjum,
Örn B


© örnbárður.annáll.is · Færslur · Ummæli