Helgileikur barna úr Melaskóla í Neskirkju
Örn Bárður @ 15.38 19/12/09

Fjöldi leiksóla- og grunnskólabarna heimsóttu Neskirkju á aðventunni.
Melaskóli stóð fyrir hefðbundinni dagskrá og hér er prufa af myndupptöku sem sóknarprestur tók á símann sinn.
Eins og heyrist þá hreyfst hann með og tók undir í söng!
Heimsóknir leikskóla- og grunnskólabarna í kirkjuna á aðventunni eru viðburður fyrir börnin og líka fyrir okkur sem tökum á móti þeim. Þegar leikskólabörnin koma eru sungnir barnasöngvar og jólasálmar, jólaguðpjallið sett fram á myndrænan hátt, brúður tala við börnin og svo fá allir kakó og piparkökur á Torginu.
Smelltu á slóðina hér á eftir og þá geturðu skoðað myndskeiðið frá heimsókn Melaskóla: helgileikurmelaskola