Stuðningur við afstöðu biskups í máli séra Gunnars Björnssonar
Örn Bárður @ 19.26 19/10/09
Ég vil með þessum stutta pistli þakka mjög góða grein Davíðs Þórs Jónssonar, guðfræðinema í Fréttablaðinu í dag, 19. október 2009 og lýsa um leið yfir stuðningi við afstöðu biskups Íslands í málinu.
Ég ritaði Davíð Þór þessa kveðju fyrr í dag:
Heill og sæll og þakka þér mergjaðan og aldeilis frábæran pistil í Fréttablaðinu í dag. Orð í tíma töluð.
Að gefnu tilefni skal það tekið fram að sóknarprestur þinn gekk á fund biskups fyrir nokkru og lýsti yfir stuðningi við afstöðu hans í málinu.
Jafnframt neitaði sá hinn sami beiðni prests nokkurs um að skrifa undir yfirlýsingu þeirra sem vildu styðja sr. Gunnar sem á endanum voru þó ekki nema 10.
Ég þykist vita að meiri hluti presta styðji biskup í málin og kem hér með á framfæri afstöðu minni en ég tel að framferði séra Gunnars sé brot á siðareglum presta og geri það að verkum að hann geti ekki starfað sem prestur í söfnuði.
Örn Bárður Jónsson
Magnús Erlingsson @ 19/10/2009 21.04
Það leikur lítill vafi á því að meirihluti presta styðji ákvörðun biskups í málefnum Selfosssafnaðar. Með henni kemur biskup í veg fyrir upplausn og deilur í söfnuðinum. Framganga sr. Gunnars Björnssonar virðist í meira lagi vafasöm séu málskjölin lesin. Auðvitað gengur það ekki að prestur né kennari né aðili, sem umgenst stúlkur í 10. bekk grunnskóla sé að strjúka þeim og kyssa talandi um að þær gefi sér svo góða strauma!