örnbárður.annáll.is

AnnállAuglýsingarLíkræðurPistlar o.fl.PrédikanirUm annálinnÞýðingar

« Stefanía J Aðalsteinsdóttir 1959-2008 · Heim · Ásdís Einarsdóttir 1952-2008 »

Kristín Marja hrakyrðir stjórnvöld og presta

Örn Bárður @ 15.47 29/10/08

Kristín Marja Baldursdóttir, rithöfundur, ritar grein í Morgunblaðið í dag 29. okt. 2008 og skeytir skapi sínu á ýmsum, þar á meðal prestum. Ég skil ekki alveg hvað henni gengur til hvað mína stétt varðar.

Hvers vegna þarf hún að hnýta í presta sem hún segir aka um á lúxusbílum biðjandi fólk að spara? Ég ek að vísu um á ágætum bíl en ég kannast ekki við að hafa haldið sparnaðarræður yfir fólki eða móralíserað úr hófi út af efnahagsástandinu.

Hins vegar hef ég reynt að telja kjark í fólk, einkum bankastarfsmenn, sem mikið hefur mætt á á liðnum vikum. Ég hef í því sambandi hvatt fólk til að gefa því aukinn gaum sem mestu skiptir, trú og grunngildum, fjölskyldu og vinum, sjálfu sér. Bankafólk hefur tekið þessu vel og af yfirvegun, sýnt æðruleysi og þolgæði í erfiðum kringumstæðum.

Þá hef ég talað tæpitungulaust um það í prédikun við messu að okkur beri að gera þessi mál öll upp af einurð og líka að fyrirgefa. Hér á ég við efnahagsþrengingarnar. Það er hins vegar hlutverk dómskefisins að dæma menn, sekta þá og jafnvel hneppa í varðhald hafi þeir gerst brotlegir við lögin.

Ég skil vel reiði hennar út í stjórnvöld og hina svo nefndu útrásarvíkinga. Að skamma þá sem áttu að standa vaktina er sjálfsagt og rétt. En skammir vegna sálgæslustarfa presta þykir mér erfitt að meðtaka. Ef við prestar erum hins vegar sekir um að halda fólki dofnu og ætlum því að sætta sig við ástandið og láta allt yfir sig ganga þá erum við vissulega gagnrýniverðir.

Ef við prestar megum ekki vera fólki til stuðnings á erfiðum tímum án þess að vera spyrtir við stjórnvöld og gerðir að taglhnýtingum þeirra, þá spyr ég hvort Rauði krossinn, lögreglan, kennarar og aðrir, sem vinna með fólki í erfiðum aðstæðum, séu í sömu sporum og prestarnir? Frábiður hún sér einnig málflutning þessa fólks og fögur orð (blessunarorð) með stóryrðum sínum og ragni?

Leyfi mér svo að benda á umfjöllun mína um taumlausa frjálshyggju í prédikun fyrir 4 árum:

http://ornbardur.annall.is/2008-10-12/varad-vid-taumlausri-frjalshyggju/#more-569

Og prédikun um viðbrögð við doða, reiði og áhyggjum vegna kreppu: http://ornbardur.annall.is/2008-10-19/nu-tharf-ad-gera-upp-og-fyrirgefa-lika/#more-587

- – -

Grein Kristínar er svohljóðandi:

Hungurvaka

STJÓRNVÖLD sviku þjóðina.

STJÓRNVÖLD sviku þjóðina. Þau báru ábyrgð á bönkum, fjármálastofnunum, eftirlitsstofnunum, einkavæðingum, þeim var treyst fyrir velferð íslenskra heimila, framtíð barnanna okkar, en í stað þess að sinna starfi sínu dorguðu þeir í rólegheitum með snekkjueigendum, dorguðu og sváfu meðan þjóðin brann.
Stjórnvöld studdu auðmenn af heilum hug, blésu út afrek þeirra, þáðu boð þeirra, sleiktu diska þeirra, en nú eftir hrunið kenna þau þjóðinni um, þjóðin hafði verið á neyslufylliríi.
Forsætisráðherra varð að biðja guð um að blessa þjóðina.
Útrásarvíkingar koma hver á eftir öðrum í viðtöl við fjölmiðla, lýsa yfir sakleysi sínu, undrun sinni á því sem gerst hefur, sjálfir komu þeir hvergi nærri, vissu ekki einu sinni af þessu.
Prestar og aðrir vitringar sem tóku ekki þátt í neyslufylliríi þjóðarinnar en aka samt um á margra milljóna króna jeppum minna þjóðina á að nú sé tími sannleikans runninn upp, nú höfum við foreldrar loks tækifæri til að sinna fjölskyldum okkar, hugsa um börnin okkar, sýna umhyggjusemi og kærleika, spara eins og við lifandi getum. Stjórnvöld og fjölmiðlar taka undir orð þeirra.
Hvern fjandann halda þau að við höfum verið að gera undanfarin ár?
Þorri þjóðarinnar er almenningur sem hefur aldrei tekið þátt í neyslufylliríi stjórnvalda og auðmanna. Almenningur er fólk sem hefur unnið hörðum höndum við að koma þaki yfir höfuðið, borga skuldir sínar, mennta börnin sín, svo útkeyrt af vinnu að það hefur aldrei haft tíma til að detta í það með stjórnvöldum og ríkri hirð þeirra. Enda aldrei verið boðið í þau partí.
Því frábið ég mér öll blessunarorð, áminningar, kjaftæði.
Stjórnvöld og auðmenn hafa ekki einungis sett heila þjóð á vonarvöl, gert hana að skuldugum vesalingum, fyrirlitnum af öðrum þjóðum, þau hafa líka með háttsemi sinni og græðgi undanfarinn áratug hunsað og eyðilagt gildin sem gerðu Íslendinga að sjálfstæðri þjóð. Virtu að vettugi hugsjónir um jafnrétti og stéttlaust þjóðfélag, gáfu skít í mannauðinn og náttúruna.
Ég bið því stjórnvöld um að hlífa mér við afsökunum og innihaldslausu bulli. Ég bið auðmenn líka um að láta það vera að væla um stöðu sína í fjölmiðlum í von um að fá samúð þjóðarinnar.
Ég hef enga samúð með ofangreindum. Mæður hafa aldrei samúð með þeim sem fremja glæpi gagnvart börnum þeirra.
Kristín Marja Baldursdóttir

url: http://ornbardur.annall.is/2008-10-29/kristin-marja-hrakyrdir-stjornvold-og-daemir-presta/

Athugasemdir

Fjöldi 1, nýjasta neðst

Örn Bárður @ 8/11/2008 10.25

Svo hitti ég allt í einu sjálfa Kristínu Marju á málverkasýningu fyrir viku. Ég gekk til hennar, heilsaði henni og sagði eitthvað á þessa elið:
-Ég var að skammast út í moggagreinina þína á vefsíðunni minni.
-Hvað segirðu, sagði hún og bætti svo við.
-Já, ég skil!
Hún áttaði sig þar með á að hún hafði alhæft um presta í greininni og bætti við:
-Ég átti nú ekki við þig eða alla presta.

Við hlógum bæði og ég sagði að greinin mín væri þá til mótvægis hennar grein og skoðunum.

Þannig virka víst skoðanaskipti. Einn segir eitthvað og fær andsvar og svarar svo aftur og svo koll af kolli.

Lífið er samtal!

Þakka Kristínu Marju hér með fyrir hennar viðbrögð við kreppunni í fyrrnefndri grein í Mbl og því hvernig hún tók gagnrýni minni.


© örnbárður.annáll.is · Færslur · Ummæli