Trú og efi
Örn Bárður @ 19.05 16/12/07
Hin árlega Ljósamessa var haldin sunnudaginn 16. des. Neskirkju og gengu fermingarbörn til kirkju með logandi kertaljós í hönd og mynduðu hring um söfnuðinn.
Prédikun mín var flutt út frá punktum og er því ekki til í handriti en hér fyrir neðan er hægt að hlusta á upptöku af henni með því að nota þríhyrninginn á hnappaborðinu.
Guðspjall dagsins:
Matt 11.2-11
Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði: „Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annars?“
Jesús svaraði þeim: „Farið og kunngjörið Jóhannesi það sem þið heyrið og sjáið: 5Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp og fátækum er flutt fagnaðarerindi. Og sæll er sá sem ekki hneykslast á mér.“
Þegar þeir voru farnir tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: „Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn? Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, prúðbúna menn er að finna í sölum konunga. Til hvers fóruð þér? Að sjá spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann. Hann er sá sem um er ritað:
Ég sendi sendiboða minn á undan þér,
hann á að greiða þér veg.
Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í himnaríki er honum meiri.