örnbárður.annáll.is

AnnállAuglýsingarLíkræðurPistlar o.fl.PrédikanirUm annálinnÞýðingar

· Heim · Fréttastofa hinna góðu tíðinda »

Nýtt upphaf

Örn Bárður @ 13.27 9/6/04

Með þessum texta hefst í vissum skilningi nýr kafli í lífi mínu. Aldrei hef ég verið iðinn við annálaritun eða ritun dagbókar nema í bókhaldi á sínum tíma en það er nú önnur saga.
Lítil eru þau fyrirheit sem ég gef í þessu sambandi en legg hér með upp í ferð sem ég veit ekki alveg hvert leiðir. Er það ekki svo með allar ferðir, hvort sem þær eru með eða án fyrirheits? En ég vona að orðin sem ég set í annálinn hjálpi sjálfum mér í glímunni við lífið og tilveruna enda eru orð líklega til alls fyrst.
Svo el ég með mér þá ósk að einhverjir bregðist við orðum mínum og úr verði samtal.

url: http://ornbardur.annall.is/2004-06-09/13.27.46/

© örnbárður.annáll.is · Færslur · Ummæli